Fara í efni

Fundaferð Markaðsstofu Norðurlands - Samstaða um markaðsmál

Fundaferð Markaðsstofu Norðurlands - Samstaða um markaðsmál

Markaðsstofa Norðurlands býður uppá fundi víðsvegar um Norðurland frá 18. mars - 29. apríl 2025.

Yfirskrift fundanna er Samstaða um markaðsmál og hvetjum við öll sem áhuga hafa á ferðaþjónustu og markaðsmálum að koma og eiga við okkur spjall.
Einnig verður farið yfir ýmis verkefni MN og skerpt á mikilvægustu áherslum norðlenskrar ferðaþjónustu.

Hittumst, ræðum það sem helst brennur á í norðlenskri ferðaþjónustu og stillum saman strengi. Sveitarstjórnarfólk er sérstaklega hvatt til að mæta á fundina, sem og allir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu.

Tímasetning allra funda er kl.11:30-13:00, nema á Þórshöfn.
Mikilvægt er að skrá sig hér að neðan, til að hægt sé að áætla fjölda þeirra sem mæta á hvern fund.

Skráning á fundina fer fram hér: https://www.northiceland.is/is/mn/starfsemi/samstada-um-markadsmal

Getum við bætt síðuna?