Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er í vörslu Ferðamálastofu. Samkvæmt lögum nr. 75/2011 um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða er markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða og ferðamannaleiða um land allt og styðja með því við þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar stoðar í íslensku atvinnulífi. Það er jafnframt markmið sjóðsins að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og styðja við svæðisbundna þróun.
Umsóknarfrestur er frá 27. september til kl. 13 þriðjudaginn 26. október 2021.
- Fyrir hverja?
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. - Til hvers?
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:- Öryggi ferðamanna.
- Náttúruvernd og uppbyggingu.
- Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
- Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.
Styrkur greiðist út í samræmi við lög og reglugerð sjóðsins og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér reglurnar. Aðeins eru veittir styrkir til verkefna en ekki til staða eða aðila.
Mótframlag
Mótframlag styrkþega er að jafnaði 20% af styrkfjárhæð. Mótframlag getur verið í formi aðkeyptrar þjónustu, efnis og/eða vinnuframlags.Varanlegar lausnir
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggur áherslu á að veita styrki til varanlegra verkefna (langtímalausna) sem byggja á vandaðri hönnun. Að öllu jöfnu er ekki gert ráð fyrir að sjóðurinn veiti fjármagni til uppsetningar skyndilausna nema ef um undantekningartilvik er að ræða þar sem mjög brýna nauðsyn ber til og þá sem undanfara varanlegrar mannvirkjagerðar eða í kjölfar náttúruhamfara.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið framkvaemdasjodur@ferdamalastofa.is
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið er að finna hér.