Fara í efni

Fjórir skólar á Norðurlandi eystra hljóta styrk

Fjórir skólar á Norðurlandi eystra hljóta styrk

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað styrkjum af fjárlögum ársins 2023.

Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 59,8 m.kr. til 32 skólaþróunar-verkefna fyrir skólaárið 2024–2025. Mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, og formaður stjórnar sjóðsins, og Bragi Þór Svavarsson, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu fimmtudaginn 30. maí.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga.

Á Norðurlandi eystra hlutu fjórir skólar styrk en það voru, Þelamerkurskóli, Dalvíkurskóli, Grenivíkurskóli og Norðurþing.
Hægt er að skoða heildarúthlutunina hér.

Getum við bætt síðuna?