Fara í efni

Frjór farvegur til nýsköpunar í Færeyjum

Frjór farvegur til nýsköpunar í Færeyjum

Norðanáttarteymið hélt til Færeyja til að sækja nýsköpunarhátíðina Tonik, sem haldin var í Þórshöfn nú í annað sinn. Anna Lind Björnsdóttir tók þátt fyrir hönd SSNE. Um 700 gestir voru á hátíðinni í ár og voru viðburðir hátíðarinnar okkur bæði gagnlegir, fræðandi og skemmtilegir. Pallborðsumræður, innblásturserindi, vinnustofur og fjárfestakynningar.  Það greinilega er mikil hreyfing og gróska í nýsköpunarsenunni í Færeyjum. Það voru einnig mjög margir þátttakendur á hátíðinni úr nýsköpunarsenunni á Norðurlöndunum og gafst einnig tækifæri til að tengjast þeim enn betur.

Tvö frumkvöðlateymi sem tóku þátt á Fjárfestahátíð Norðanáttar í mars sl. tóku þátt í pitch keppni og lenti Surova þar í úrslitum og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn. 

Við erum ótrúlega spennt fyrir áframhaldandi samstarfi við Hugskotið sem heldur utan um hátíðina og þökkum gömlum vinum og nýjum, kærlega fyrir samveruna!

Getum við bætt síðuna?