Fara í efni

Fjölbreytt verkefni styrkt í Grímsey

Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands
Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands

Fjölbreytt verkefni styrkt í Grímsey

Frumkvæðissjóður Brothættra byggða í byggðaþróunarverkefninu Glæðum Grímsey úthlutaði nýlega rúmlega 16 milljónum króna til tólf verkefna sem sóttu um stuðning til sjóðsins. Að þessu sinni var um að ræða tvöfalda fjárhæð til úthlutunar, þ.e. fyrir úthlutunarárin 2021 og 2022. Heildarkostnaður við verkefnin er um 55.5 milljónir króna, en sótt var um styrki að upphæð alls 23.3 m.kr. Þetta er síðasta úthlutun úr sjóðnum í verkefninu GLG, en verkefninu lýkur í lok árs 2022.

Eftifarandi verkefni hlutu stuðning:

Nafn umsækjanda: 

Nafn verkefnis:

Laufey Haraldsdóttir/Háskólinn á Hólum

Ábyrg eyjaferðaþjónusta í Grímsey

Kvenfélagið Baugur

Starfs- og vinnuaðstaða

Hallgerður Gunnarsdóttir

Menntabúðir við Heimskautsbaug

Hellugjögur ehf

Menningarmiðstöð - hönnun og uppbygging

Einar Guðmann

Photographing Grímsey

Vistorka ehf

Orkuskipti í Grímsey - Upplýsingar og fræðsla

Muninn ehf

Bætt þjónusta við ferðamenn í Grímsey

Mayflor Perez Cajes

Grímsey Design

Gyða Henningsdóttir

Vörulína fyrir Grímsey

Vélaverkstæði Sigurðar Bjarnas.

Hreinsunarátak

Básavík ehf

Gólfefnaskipti

Samtals úthlutað 16.430.000 kr.

Fjöldi og metnaður umsókna sem bárust í Frumkvæðissjóðinn endurspeglar áhuga fyrirtækja, stofnana og einstaklinga á að þróa og efla atvinnulíf og samfélag í Grímsey. 

Í bækling hér fyrir neðan getur þú lesið nánar um útlistun á þeim verkefnum sem hlutu styrk. Hér er hægt að sækja bæklinginn á PDF. formi. 

 

Nánari upplýsingar veitir Arna Björg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri (arna@ssne.is)

Getum við bætt síðuna?