Fara í efni

Ferðamálastofa auglýsir starf án staðsetningar - frestur rennur út 5.mars

Ferðamálastofa auglýsir starf án staðsetningar - frestur rennur út 5.mars

Ferðamálastofa leitar að einstaklingum til efnisvinnslu og textaskrifa fyrir vefinn visiticeland.com og miðla tengdum honum.

Ferðamálastofa, Íslandsstofa og atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið hafa með samkomulagi sín á milli ákveðið að vefurinn VisitIceland.com verði helsta upplýsingaveita fyrir ferðamenn á leið til landsins, á meðan dvöl þeirra á landinu stendur og eftir að heim er komið. Er þá m.a. horft til upplýsinga um framboð þjónustu, menningu, sögu, náttúru, fjölbreytileika landsins, aðgengi ferðamannastaða, öryggi og umhverfisvernd, veður og færð á vegum.

Mikilvægt er að í slíkri miðlun upplýsinga sé ítarlegt og vel unnið efni, bæði texti og myndir. Uppfærsla og endurnýjun á efni þarf að vera stöðug til að miðillinn sé lifandi og áreiðanlegur.

Leitað er að einstaklingum með fasta búsetu utan höfuðborgarsvæðisins en að öðru leyti er um störf án staðsetningar að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti haft starfsaðstöðu utan heimilis. Miðað er við að starfshlutfall sé að lágmarki 50%.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Textaskrif um land og þjóð í samræmi við ritstjórnarstefnu VisitIceland.com
  • Uppfærsla upplýsinga og leiðbeininga á VisitIceland.com
  • Samstarf við áfangastaðastofur, sveitarfélög og fyrirtæki í ferðaþjónustu um gerð efnis fyrir ferðamenn
  • Þýðing og staðfærsla efnis og texta fyrir stafræna miðlun

Hæfniskröfur

  • Yfirgripsmikil reynsla af textaskrifum fyrir vef (leitarvélabestun) og þekking á sviði ferðaþjónustu, háskólapróf er kostur.
  • Mjög góð enskukunnátta og reynsla af skrifum á ensku. Þekking á fleiri tungumálum kostur
  • Góð þekking á landi og þjóð, menningu og staðháttum og sérstöðu Íslands s.s. veðráttu og öryggi?
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Tölvukunnátta og góð þekking á samfélagsmiðlum og vefmiðlun

Nánari upplýsingar

Umsóknum skal skila á netfangið upplysingar@ferdamalastofa.is fyrir 5. mars nk.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Inga Rós Antoníusdóttir ingaros@ferdamalastofa.is

Frétt á heimasíðu Ferðamálastofu

Getum við bætt síðuna?