Er þitt fyrirtæki í stafrænni vegferð og þarf fjármagn í næstu skref?
Er þitt fyrirtæki í stafrænni vegferð og þarf fjármagn í næstu skref?
Íslenski ferðaklasinn er hluti af Evrópuverkefninu TOURBIT sem hefur það hlutverk að hraða ferðaþjónustufyrirtækjum í gegnum hið stafræna ferðalag.
Hægt verður að styðja við sjö fyrirtæki á Íslandi að andvirði 9.000 € hvert.
Þessi hluti verkefnisins er unnin með stuðningi Ferðamálastofu og landshlutasamtakanna með samstarfi við áfangastaðastofur/markaðsstofur landshlutanna víða um land.
Hverjir geta sótt um?
Þau fyrirtæki sem geta sótt um stuðning á sinni stafrænu vegferð eru fyrirtæki í þessum flokkum:
- Hótel og gististaðir - Hotels and similar accommodation (NACE I5510)
- Gistiheimli og smáhýsi - Holiday and other short-stay accommodation (NACE I5520)
- Tjaldsvæði - Camping grounds, recreational vehicle parks and trailer parks (NACE I5530)
- Ferðaskrifstofur, ferðasalar dagsferða og tengdur rekstur - Travel agency, tour operator reservation service and related activities (NACE N79)
Hvaða skilyrði eru fyrir því að umsóknin sé tekin til greina?
- Fyrirtæki sé lítið eða meðalstórt fyrirtæki á evrópskum mælikvarða (starfsmenn á bilinu 1-250)
- Velta sé undir 50m €
- Tilgreina hvaða stafræna úrbótaverkefni fyrirtækið hyggst vinna að
- Vera hluti af Tourbizz samfélaginu.
- Fara í gegnum stafrænt hæfni mat / Sjálfsmat – sjá hér.
Hvað má nota stuðninginn í?
- Ráðagjafakostnað og sérfræðikostnað
- Auka hæfni og þekkingu innan fyrirtækis með aðkeyptri þjónustu (námskeið, menntun, osfrv)
- Innleiðingaferli á nýrri tækni
- Eingöngu er hægt að nota stuðninginn hjá fyrirfram ákveðnum þjónustuaðilum, listi yfir þjónustuaðala verður aðgengilegur hér. tourbit.eu - ef þú ert þjónustuaðili getur þú skráð þig hér.
Mikilvægt er að kynna sér málið vel hér, hala niður umsókninni hér og senda inn umsókn fyrir 5.apríl!