Kraftar fjölbreyttra skapandi greina, ferðaþjónustu og náttúru á Norðausturhorninu
Kraftar fjölbreyttra skapandi greina, ferðaþjónustu og náttúru á Norðausturhorninu
Eitt af markmiðum Sóknaráætlunar er að efla menningartengda ferðaþjónustu, sérstaklega utan háannatíma. Uppbyggingarsjóður er eitt af mikilvægum verkfærum SSNE til að örva atvinnugreinina og hvetja menningarfrumkvöðla. Til að mynda hlutu umsóknir aukastig sem lögðu upp með að efla menningartengda ferðaþjónustu utan háanna tíma. Sem dæmi um slíkt verkefni er vert að nefna tónleika Skálmaldar í Heimskautsgerðinu við Raufarhöfn 7. september síðastliðin. Þar voru sameinaðir kraftar fjölbreyttra skapandi greina til að vekja athygli á list, ferðaþjónustu og náttúru norðausturhornsins utan háanna tíma; eða tónlist, kvikmyndalist, sviðslistir, menningararfurinn og stærsta útilistaverk landsins.
Gott veður og rífandi stemning var á tónleikum þar sem starfsfólk og hátt í 1600 gestir voru samankomnir í dásamlegu veðri í stórkostlegu umhverfi Raufarhafnar. Samsvarar þessi tala því að um 1,2 milljón gesta hefðu mætt til Reykjavíkur á tónleika á Arnarhóli. Aðkoma í þorpinu, gisting, tjaldsvæði, veitingasala og hvað eina gekk vonum framar, mikil samstaða var í þorpinu og allir hjálpuðust að við að gera helgina ógleymanlega fyrir heimafólk og gesti. Ljóst er að Heimskautsgerðið er mikilfenglegur staður sem býður upp á magnað og eftirminnilegt viðburðarhald. Í aðdraganda tónleikanna og á eftir, var gríðarleg umfjöllun og segja sumir að þetta verkefni hafi komið Raufarhöfn á kortið. Umfjöllun um Gerðið og Raufarhöfn var mjög mikil og sást vel í goggle trend greiningu.
Tónleikamynd sem tekin var upp samhliða mun sannarlega halda þessari góðu ímynd á lofti. Það er norðlenska framleiðslufyrirtækið Castor Media sem framleiðir myndina fyrir Heimskautsgerðið, en hún verður unnin fyrir íslenskan og alþjóðlegan markað, og tekin upp í UHD gæðum. Samhliða tónleikaupptöku var starfsfólk Castor Media að störfum á Raufarhöfn í aðdraganda tónleikanna og tók upp mikið myndefni á tónleikadeginum og sýnir hvað mörg lögðust á eitt til að taka vel á móti þessum mikla fjölda fólks í þorpinu. Afurð þeirrar vinnu er heimildarþátturinn "Raufarhöfn Rokkar!" sem frumsýndur var á Raufarhöfn nú í janúar að viðstöddu fjölmenni. RÚV hefur keypt sýningarrétt efnisins og verður það sýnt á fyrri hluta ársins 2025.
Viltu vita meira um Heimskautsgerðið ?
Tónleikarnir fengu mikla umfjöllun t.d hjá Nútímanum, Far out, Vísi og á fleiri miðlum.