Fara í efni

Dansvídeóhátíðin Boreal Screendance á Norðurlandi eystra

,,Fight or flight
,,Fight or flight"

Dansvídeóhátíðin Boreal Screendance á Norðurlandi eystra

Dansvídeóhátíðin Boreal Screendance Festival fer fram í fimmta sinn dagana 1. - 13. nóvember 2024.
Hátíðin leggur undir sig Listagilið á Akureyri þessar tæpu tvær vikur en sýningarstaðir eru Listasafnið á Akureyri, Mjólkurbúðin og Deiglan.

Boreal Screendance Festival miðar að eflingu danslista og margmiðlunar með sérstaka áherslu á alþjóðasamstarf. Í ár verða sýndar 34 dansmyndir og vídeódansverk vítt og breitt um Listagilið eftir listafólk frá 21 landi og hefur dagskráin aldrei verið fjölbreyttari!

Boreal hefur verið haldin árlega síðan 2020 í Listagilinu á Akureyri og á þeim tíma vakið verðskuldaða athygli fyrir nýstárlega nálgun á sýningar myndbandsverka úr öllum heimshornum. Mikið púður er lagt í umgjörð hátíðarinnar og að verkin sem tekin eru til sýningar séu sett fram við bestu mögulegu aðstæður hvað varðar hljóð og mynd.

Miðað við aðsókn síðustu ára hentar Boreal jafnt heimafólki, aðfluttum sem og ferðamönnum enda alþjóðleg hátíð í anda. Allir gestir ættu þannig að geta fundið eitthvað við sitt hæfi enda fjölbreytileiki dansvídeóverkanna gríðarlegur sem endurspeglar vel þann fjölda listafólks allsstaðar að úr heiminum sem tekur þátt. Boreal hefur auk þess mikla sérstöðu í menningarlandslaginu en hún er eina hátíðin sinnar tegundar sem haldin er árlega hérlendis.

Það er samtímadansarinn og danshöfundurinn Yuliana Palacios sem er stofnandi og listrænn stjórnandi Boreal. Yuliana er frá Mexíkó en fluttist til Íslands árið 2016 og hefur síðan þá látið að sér kveða í menningarlífinu hérlendis. Hefur hún ýmist sett upp sjálfstæð dans- og gjörningaverk eða unnið í samstarfi við annað listafólk auk þess að sinna kennslu. Síðustu ár hefur Yuliana fengist við myndbandagerð og margmiðlun í auknum mæli og er dansvídeóhátíðin Boreal ein birtingarmynd þess.


Boreal hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2021 sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni.

Allir viðburðir á vegum Boreal Screendance Festival 2024 eru opnir gestum að kostnaðarlausu. Dagskrá má nálgast á miðlum og heimasíðu Boreal.

Boreal Screendance Festival á samfélagsmiðlum:
https://www.instagram.com/boreal_akureyri/
https://www.facebook.com/borealakureyri/

Viðburður Boreal Screendance Festival 2024:
https://fb.me/e/4Tnkos7bt

Hátíðin er eitt af þeim  metnaðarfullu verkefnum á sviði menningar og skapandi atvinnugreina sem hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra vegna ársins 2024. 

Getum við bætt síðuna?