Fara í efni

Byggðaþróun – styrkir til meistaranema, frestur framlengdur til 30. nóvember

Byggðaþróun – styrkir til meistaranema, frestur framlengdur til 30. nóvember

Byggðastofnun auglýsti í september s.l. eftir umsóknum um styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. Þar sem fáar umsóknir bárust hefur verið ákveðið að framlengja umsóknarfrestinn.

Til úthlutunar er allt að 1.000.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar.

Rafrænt umsóknarform, verklagsreglur vegna úthlutunar og byggðaáætlun 2018-2024 er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is.

Í umsókn skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgímsdóttir. Netfang: sigga@byggdastofnun.is, sími 455 5461 og 869 7203

Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 30. nóvember 2021.

 

Getum við bætt síðuna?