Fara í efni

Bókun stjórnar SSNE um Reykjavíkurflugvöll

Myndin tengist efni fréttarinnar óbeint.
Myndin tengist efni fréttarinnar óbeint.

Bókun stjórnar SSNE um Reykjavíkurflugvöll

Á 70. fundi stjórnar SSNE sem haldinn var þann 14. febrúar var eftirfarandi bókun samþykkt vegna Reykjavíkurflugvallar:

Stjórn SSNE tekur undir ályktanir sveitarstjórna á Norðurlandi eystra sem og yfirlýsingu Miðstöðvar sjúkraflugs á Íslandi þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum vegna lokunar flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli. Þessi lokun mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir sjúklinga sem þurfa á bráðri læknisþjónustu að halda og er það er óásættanlegt að lífslíkur og batahorfur sjúklinga séu í hættu vegna þessara takmarkana.

Stjórn SSNE krefst tafarlausra aðgerða til að tryggja aðgengi sjúkraflugvéla að Reykjavíkurflugvelli, þar sem þetta er lífsnauðsynlegt fyrir veika og slasaða af stærstum hluta landsins. Það er skýr krafa að Reykjavíkurborg, Innviðaráðuneyti, ISAVIA og Samgöngustofa axli ábyrgð og tryggi opnun og rekstraröryggi flugbrauta 13 og 31 án tafar.

Nánari upplýsingar um bókunina veitir formaður stjórnar, Lára Halldóra Eiríksdóttir. 

Getum við bætt síðuna?