Fara í efni

Aukin verðmætasköpun og sterkari rekstur í ferðaþjónustu - skráning hafin

Aukin verðmætasköpun og sterkari rekstur í ferðaþjónustu - skráning hafin

Nú er tækifærið til að taka þátt í Ratsjánni 2025, þróunarverkefni fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu sem vilja efla getu sína og auka samkeppnishæfni í átt að sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu. Íslenski ferðaklasinn hefur gert samning við Menningar- og viðskiptaráðuneytið um framkvæmd Ratsjárinnar í þeim tilgangi að efla samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun í íslenskri ferðaþjónustu.

,,Tækifæri til sóknar á forsendum samfélaganna sjálfra hafa aldrei verið eins mikil og aðkallandi. Með Ratsjánni munum við styðja við og standa saman að því að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki verði fremst í heimi þegar kemur að sjálfbærni og nærandi viðskiptaháttum þar sem unnið er að sátt og jafnvægi milli tilgangs og tekna. Sameiginlega tökumst við á við áskoranirnar framundan og saman munum við fagna komandi sigrum.” -Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Íslenski ferðaklasinn 

Kynningarfundur
verður haldinn 9. desember kl. 11:30-12:15, sjá nánar hér

Markmið verkefnisins:
Ratsjáin 2025 leggur áherslu á að efla sjálfbærni í íslenskri ferðaþjónustu í samræmi við stefnu stjórnvalda um að gera Ísland að leiðandi landi í sjálfbærri þróun. Með Ratsjánni gefst fyrirtækjum einstakt tækifæri til að byggja upp þekkingu og hæfni sem skilar sér í aukinni verðmætasköpun og sterkari rekstri.

Helstu dagsetningar:

  • Kynningarfundur 9. desember 2024
  • Kynningarfundur (Kick-off): 15. janúar 2025 í Reykjavík á Ferðaþjónustuvikunni

  • Umsóknarfrestur: 17. janúar 2025

  • Verkefnið hefst formlega: 28. janúar 2025

  • Lokaviðburður: 3. apríl 2025 á Akureyri

Hvað bíður þátttakenda?
Dagskráin verður sérsniðin að þátttakendum og samanstendur af 5 lotum. Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og verkefnum inni á lokuðu vinnusvæði Ratsjánnar og vinnustofum á netinu þar sem markmiðið er að fá jafningjarýni, endurgjöf og umræður í hópum.

Verð og stuðningur:
Þátttökugjald í Ratsjána í upphafi árs 2025 er 15.000 kr per fyrirtæki sem veitir aðgang fyrir tvo starfsmenn. Hægt er að nýta starfsmenntasjóði til að mæta kostnaði.

Hvernig skrái ég mig?
Það er einfalt að skrá sig! Smelltu á umsóknarformið hér til að fylla út umsóknina og tryggja þátttöku fyrir 17. janúar 2025.

Ekki missa af þessu tækifæri til að taka þátt í Ratsjánni 2025 og vera hluti af framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu!
Getum við bætt síðuna?