Umsóknarfrestur er til kl 23:59, mánudaginn 22. nóvember 2021.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu
Styrktarsjóður Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns auglýsir eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu árið 2022.
Til hvers ? Tilgangur styrkjanna er að stuðla að eflingu íslensks tónlistarlífs með því að veita tónlistarfólki styrki til tónleikahalds í tónlistarhúsinu Hörpu. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja ungt og framúrskarandi tónlistarfólk.
Fyrir hverja? Umsækjendur geta verið m.a. einstaklingar, tónlistarhópar, tónlistarhátíðir, hljómsveitir og félagasamtök.
Sjóðurinn leggur áherslu á eftirfarandi atriði við mat umsókna.
- Að verkefnið nýti þá möguleika sem Harpa býður upp á.
- Að verkefnið sé vandað og metnaðarfullt.
Umsækjandi ber fjárhagslega ábyrgð á verkefninu og er heimilt að sækja um aðra styrki. Umsókninni skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, fjárhagsáætlun svo og upplýsingum um skipuleggjendur og flytjendur
Úthlutað verður í desember 2021.
Við hvetjum okkar frábæra og hæfileikaríka tónlistarfólk í landshlutanum til að kynna sér málin betur. Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu sjóðsins.