Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands
Ljósmynd: Markaðsstofa Norðurlands

Auglýst eftir umsóknum um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024 vegna verkefna sem tengjast aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða.

Um framlögin

Sérstök áhersla er lögð á svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf og verða verkefni sem eru atvinnuskapandi, hvetja til nýsköpunar og eru líkleg til að hafa varanleg og veruleg jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang.

Veitt verða framlög til verkefna:

  • sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans
  • sem nýtast landshlutanum í heild

Við mat á umsóknum verður stuðst við eftirfarandi þætti:

  • Íbúaþróun, aldurssamsetningu og kynjahlutfall
  • Samsetningu atvinnulífs og atvinnustig
  • Meðaltekjur
  • Önnur atriði sem skipta máli við mat á aðstæðum viðkomandi svæðis eða landshluta

Styrkhæfir aðilar
Einungis landshlutasamtök sveitarfélaga geta sótt um þá styrki sem hér eru auglýstir.

Styrkfjárhæðir í boði
Allt að 120 milljónum króna verður veitt til að styrkja sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Heimilt er að veita styrki til sama verkefnis til allt að fimm ára, en þá með fyrirvara um endurskoðun byggðaáætlunar og fjárheimildir fjárlaga hvers árs. Árleg hámarksfjárhæð til einstakra verkefna er 25 milljónir króna, en styrkfjárhæð getur aldrei numið hærra hlutfalli en 80% af heildarkostnaði við verkefni.

Atriði sem þurfa að koma fram í umsókn
Vísað er í reglur um úthlutun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar 2018-2024.

Í umsókn skal umsækjandi meðal annars lýsa með greinargóðum hætti markmiðum verkefnis sem liggur til grundvallar umsókn, áætlun um framkvæmd þess, ásamt tíma- og kostnaðaráætlun. Í umsókn þarf að koma fram nákvæm upphæð sem sótt er um. Þá skal koma fram mat á áhrifum verkefnisins.

Njóti umsækjandi annarra styrkja eða framlaga vegna verkefnisins skal hann gera grein fyrir slíkum framlögum eða styrkjum. Einungis umsóknir sem uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilmála verða teknar til greina.

Valnefnd, umsögn Byggðastofnunar, tímafrestur og áætlaður afgreiðslutími
Umsóknir þurfa að berast í gegnum rafrænt umsóknarform Byggðastofnunar fyrir miðnætti þriðjudagsins 28. febrúar 2022.
Þriggja manna valnefnd metur allar umsóknir að fenginni umsögn Byggðastofnunar og gerir tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja. Áætlað er að niðurstöður ráðherra liggi fyrir í mars 2022. Byggðastofnun annast fyrir hönd ráðuneytisins samningsgerð við styrkþega, umsýslu með greiðslum og eftirlit með framkvæmd verkefnis.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Kr. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun: sigga@byggdastofnun.is.

Getum við bætt síðuna?