Aflamark Byggðastofnunar – boð um samstarf í Grímsey
Aflamark Byggðastofnunar – boð um samstarf í Grímsey
Á grundvelli reglugerðar nr. 1256/2024 um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda án vinnsluskyldu auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda í:
- Grímsey í Akureyrarbæ – allt að 300 þorskígildistonn
fiskveiðiárin 2024/2025, 2025/2026, 2026/2027.
Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem :
- standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi eða ætla megi að samdráttur í greininni myndi skapa slíkan vanda
- eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu
- eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða
Í því skyni er að stefnt að uppbygginu í sjávarútvegi sem:
- skapar og viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum
- stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma
Endanlegt val á samstarfaðilum mun byggja á eftirfarandi þáttum:
- trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi
- fjölda heilsársstarfa
- sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðalaginu
- öflugri starfsemi til lengri tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina
- jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið
- traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda
- lönduðum botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2018 til 31. ágúst 2024.
Magn aflaheimilda er með fyrirvara um úthlutun matvælaráðuneytisins til Aflamarks Byggðastofnunar ár hvert.
Umsóknum sem ekki falla að markmiðum verkefnisins verður hafnað.
Reglugerð nr.1256/2024 um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda samkvæmt 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og verklagsreglur um aflamark án vinnsluskyldu.
Nánari upplýsingum er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is.
Umsóknir skal senda til Byggðastofnunar í gegnum umsóknargátt á heimasíðu stofnunarinnar www.byggdastofnun.is fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 10. desember 2024.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Byggðastofnunar í gegnum netfangið aflamark@byggdastofnun.is og í síma 455-5400.