Fara í efni

147 umsóknir í Uppbyggingarsjóð

147 umsóknir í Uppbyggingarsjóð

Umsóknarfrestur fyrir Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra rann út 16. október, en alls bárust 147 umsóknir, þar af voru 70 menningarverkefni, 67 atvinnu- og nýsköpunarverkefni og 10 stofn- og rekstrarstyrkir menningarstofnana. Er það aukning frá fyrra ári þegar 123 umsóknir bárust. Sótt var um fyrir um það bil 267 miljónum en ráðgert er að úthluta 72,5 milljónum að þessu sinni.

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja við verkefni sem falla að Sóknaráætlun Norðurlands eystra í þremur flokkum, atvinnu og nýsköpun, menningu og stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar.

Úthlutunarnefnd mun nú fara yfir umsóknir og leggja mat á þau verkefni sem bárust. Þá er gert ráð fyrir því að haldin verði rafræn úthlutunarhátíð þann 5. desember n.k.

Getum við bætt síðuna?