Fara í efni
Umsóknarfrestur: styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins

Menningar- og viðskiptaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins og er umsóknarfrestur til miðnættis mánudaginn 18. nóvember 2024.

Markmið með styrkveitingum til einkarekinna staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins er að efla starfsemi þeirra enda gegni þeir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðja með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf (3. gr. reglna nr. 1146/2024 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla).

Til úthlutunar árið 2024 eru 12,5 m.kr.:
10 m.kr. frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu og
2,5 m.kr. frá innviðaráðuneytinu vegna aðgerðar C.07 í byggðaáætlun; Efling fjölmiðlunar í héraði.

Umsækjendum er bent á að kynna sér ákvæði reglna nr. 1146/2024 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla.

Umsóknarferlið:
Til að sækja um þarf að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má hér. Umsóknina þarf að prenta út til undirritunar, skanna og senda ásamt öllum umbeðnum fylgiskjölum á netfang menningar- og viðskiptaráðuneytis, mvf@mvf.is, fyrir miðnætti 18. nóvember 2024. Ef spurningar vakna um hvernig eigi að fylla umsóknina út er hægt að senda fyrirspurn á framangreint netfang.

Umsóknarfrestur: styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins