Stjórn SSNE boðar hér með til rafræns aukaþings samtakanna 1. október 2021. Þingið verður sett kl 8:30 og er gert ráð fyrir því að þinglok verði kl 11:30 sama dag. Með tilliti til stöðu heimsfaraldursins og sóttvarnarreglna er gert ráð fyrir rafrænu þingi. Þingið er öllum opið sem eiga lögheimili á Norðurlandi eystra.
Haustþing SSNE
Dagskrá:
08:30 Þingsetning. Hilda Jana Gísladóttir, formaður SSNE.
Kosning fundarstjóra og tveggjan ritara.
Kosning kjörnefndar.
Kosning fjárhags- og stjórnsýslunefndar.
Skýrsla stjórnar - framvinda starfsáætlunar yfirstandandi árs.
Starfsáætlun SSNE 2022.
Staða fjárhagsáætlunar 2021 og drög að fjárhagsáætlun 2022.
09:00 Tillögur frá framkvæmdastjóra
Tillaga um breytta skipan fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar.
Tillaga um stofnun fagráðs umhverfismála SSNE.
Tillaga um skipan fagráðs umhverfismála.
Tillaga um fjölgun varamanna í úthlutunarnefnd uppbyggingarsjóðs.
Tillaga um skipan úthlutunarnefndar uppbyggingarsjóðs.
09:10 Svæðisborgin Akureyri - kynning og umræður
09:30 Samgöngustefna SSNE, staða verkefnisins og umræður
10:20 Kaffihlé
10:30 SSNE og atvinnulífið - kynning
10:45 - Hópavinna um áherslur SSNE í málefnum atvinnulífsins - kynningar hópa
11.15 Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
11:20 Önnur mál.
11:30 Þingslit
Málfrelsi og tillögurétt á þingum eiga eftirtaldir aðilar:
Fulltrúar í úthlutunarnefnd uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra
Fulltrúar fagráða SSNE
Fulltrúar í undirnefndum SSNE
Fulltrúar formlegra samtaka atvinnulífs sem starfa á svæðinu
Fulltrúar formlegra stéttarfélaga sem starfa á svæðinu
Fulltrúar menningar- og listastofnana sem starfa á svæðinu
Fulltrúar fræðastofnana á svæðinu
Fulltrúar formlegra samtaka á sviði umhverfismála á svæðinu
Fulltrúar opinberra stofnana
Framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaga
Kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaga og varamenn þeirra
Alþingismenn Norðausturkjördæmis og varamenn þeirra
Hægt er að senda tölvupóst á ssne@ssne.is til að fá senda slóð á fundinn.