Fara í efni

Vilt þú hafa áhrif á nýja Sóknaráætlun?

Vilt þú hafa áhrif á nýja Sóknaráætlun?

Opnað hefur verið fyrir skráningu á vinnustofur í tengslum við gerð nýrrar Sóknaráætlunar fyrir Norðurland eystra. Á vinnustofunum verður safnað saman verkefnahugmyndum fyrir næsta fimm ára tímabil nýrrar Sóknaráætlunar.

Vinnustofurnar verða haldnar í öllum sveitarfélögum og fer skráning fram hér. Á vinnustofunum verður fjallað um þrjá málaflokka nýrrar Sóknaráætlunar Norðurlands eystra:

  • Atvinnulíf - Framsækið og fjölbreytt atvinnulíf með áherslu á nýsköpun
  • Blómlegar byggðir - Sterk og umburðarlynd samfélög með öflugu menningarlífi
  • Umhverfismál - Leiðandi landshluti í umhverfis- og loftslagsmálum

Hvetjum öll til að mæta og taka þátt!

Getum við bætt síðuna?