Fagráð menningar - 18. fundur
12.01.2019
18. fundur.
Árið 2019, laugardagurinn 12. janúar kl. 19:30 kom fagráð menningar saman til fundar að Hótel Natur, Þórisstöðum. Mætt voru: Hulda Sif Hermannsdóttir formaður, Sólveig Elín Þórhallsdóttir, Líney Sigurðardóttir og Guðni Bragason. Magnús Guðmundur Ólafsson forfallaðist. Einnig var mætt Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnisstjóri menningarmála hjá Eyþingi.
Fundarsetning:
Formaður Hulda Sif Hermannsdóttir, bauð fundarmenn velkomna til fundar og gengið var til dagskrár.
Haldið var áfram vinnu, við mat á styrkumsóknum og afgreiðslu þeirra, þar sem frá var horfið og farið var ítarlega yfir allar styrkumsóknir.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 22:30.
Vigdís Rún Jónsdóttir fundarritari.