21. fundur fagráðs menningar
Fagráð menningar
21. fundur.
Árið 2020, laugardaginn 11. janúar kl. 20:00, kom fagráð menningar saman til fundar að Hótel Natur, Þórisstöðum. Mætt voru: Hulda Sif Hermannsdóttir formaður, Sólveig Elín Þórhallsdóttir, Guðni Bragason og Ólafur Stefánsson. Einnig var mætt Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnastjóri menningarmála hjá Samtökum atvinnuþróunar og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Líney Sigurðardóttir forfallaðist vegna veðurs.
Fundarsetning:
Formaður Hulda Sif Hermannsdóttir, bauð fundarmenn velkomna til fundar og gengið var til dagskrár.
Haldið var áfram vinnu, við mat á styrkumsóknum og afgreiðslu þeirra, þar sem frá var horfið og farið var ítarlega yfir allar styrkumsóknir.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 23:00.
Vigdís Rún Jónsdóttir fundarritari.