Fundargerð - Menningarráð - 18.02.2013
44. fundur
Mánudaginn 18.febrúar kl. 12:30 kom Menningarráð Eyþings saman til fundar á Hotel Natur Svalbarðsströnd. Mættir eru: Arnór Benónýsson, Þórgunnur Reykjalín, Bjarni Valdimarsson, Kjartan Ólafsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir, Andrea Hjálmsdóttir og Hildur Stefánsdóttir. Einnig mætt Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi.
Fundarsetning:
Formaður, Arnór Benónýsson, bauð fundarmenn velkomna til fundar og gengið var til dagskrár.
1. Stefna í menningarmálum á starfssvæði Eyþings 2013 -2018
Fundarmenn höfðu fengið send drög „Stefna í menningarmálum á starfssvæði
Eyþings 2013-2020“.
Almenn umræða um vinnslu á sameiginlegri menningarstefnu á starfssvæði Eyþings. Samþykkt að Menningarráð lesi drögin yfir og sendi athugasemdir til menningarfulltrúa. Í framhaldi verði hún samþykkt í tölvupósti og komið til afgreiðslu hjá sveitarfélögum.
2. Sóknaráætlun landshluta
Samþykkt var hjá Eyþingi að tvö menningarverkefni yrðu sett á áætlun og unnin á vegum menningarráðsins. Annars vegar útvíkkun á þróunarverkefninu „Aftur heim“, sem nær nú yfir báðar Þingeyjarsýslurnar með áherslu á jaðarbyggðir, og hins vegar verkefnið „Grunngerð og mannauður“ kortlagning á menningarstarfi. Lagt var til að skoða möguleika á að samræma skráningar á landsvísu, þ.e. hvað og hvernig yrði skráð í gangnagrunnin. Gagnagrunnurinn verður síðan aðgengilegur á vefsvæði menningarráðs. 4 milljónir áætlaðar í hvort verkefni fyrir sig.
Eftirfarandi bókun var gerð á fundinum:
„Menningarráð lýsir yfir ánægju með þau verkefni á sviði menningarmála sem studd verða með framlagi frá sóknaráætlun landshlutans. Þau tvö verkefni sem unnin verða á vegum menningarráðsins eru vel til þess fallin að styrkja það starf sem menningarráð hefur haft á sínu forræði undanfarin ár. Mikilvægt er að þeim nýju verkefnum sem verða falin menningarráðinu verði sinnt af starfsmanni sem sérstaklega verði ráðinn til þeirra og vinni þau undir stjórn menningarfulltrúa. Einnig er mikilvægt er að samráð verði haft við menningarráð í öðrum verkefnum sóknaráætlunar landshlutans sem geta tengst menningarmálum.“
Menningarfulltrúa falið að koma bókuninn til stjórnar Eyþings.
3. Úthlutun stofn- og rekstrarstyrkja
Vanhæfi;
Hanna Rósa mál nr. 3, 4, 12
Hildur mál nr. 17
Arnór mál nr. 13, 14
Borist höfðu 17 umsóknir til menningarráðsins, samtals að upphæð 38,642,120.- kr.
Eftirtaldir aðilar hlutu stofn- og rekstrarstyrk árið 2013;
1 Félag um Þjóðlagsetur sr. Bjarna Þorsteinssonar 1,200,000
2 Mótorhljólasafn Íslands 2,000,000
3 Menningarfélagið Hraun Öxnadal 375,000
4 Gásakaupstaður 2,000,000
5 Skjálftafélagið, félag áhugamanna um stofnun Jarðskjálftaseturs á Kópaskeri 1,500,000
6 Barokksmiðja Hólastiftis 500,000
7 Listasafn Fjallabyggðar 1,000,000
8 Sauðanesnefndin 200,000
9 Myndlistafélagið 400,000
10 Verksmiðjan á Hjalteyri 400,000
11 Gamli barnaskólinn Skógum - Fnjóskadal 200,000
12 Náttúrusetrið á Húsabakka 900,000
13 Fræðasetur um forystufé 1,500,000
Samtals 12,175,000
4. Önnur mál
Fleira ekki gert og fundi slitið 18:10
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir og Hildur Stefánsdóttir, fundarritarar.