Fundargerð - Menningarráð - 15.01.2012
35. fundur
Árið 2012, sunnudaginn 15.janúar kl. 15:00, kom Menningarráð Eyþings saman til fundar að Borgum við Norðurslóð. Mætt voru: Þórgunnur Reykjalín, Arnór Benónýsson, Bjarni Valdimarsson, Bryndís Símonardóttir, Gunnólfur Lárusson, Ingibjörg Sigurðardóttir og Sigurður Guðmundsson. Einnig mætt Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi.
Fundarsetning:
Formaður, Þórgunnur Reykjalín, bauð fundarmenn velkomna til fundar og gengið var til dagskrár.
1. Staða verkefna frá 2011
Menningarfulltrúi fór yfir stöðu verkefna sem fengu styrkvilyrði árið 2011. Niðurfelldir og lækkaðir styrkir að upphæð 1.480 þúsund koma aftur til úthlutunar.
2. Úthlutun
Borist höfðu 127 umsóknir til menningarráðsins, samtals að upphæð 75.259.070.- kr.
Um vanhæfi:
Ingibjörg kvaðst vanhæf við umfjöllun umsóknar nr. 120, 84, 59, 125
Bryndís kvaðst vanhæf í nr. 70, 46, 76, 105
Arnór kvaðst vanhæfur í nr. 45, 69, 96, 104, 115, 116
Sigurður kvaðst vanhæfur í nr. 107
Gunnólfur kvaðst vanæfur í nr. 34, 49
Þórgunnur kvaðst vanhæf í nr. 59, 124
Unnið var að flokkun og yfirferð umsókna að fundarlokum.
Fleira ekki gert – fundið slitið til kl. 20.06
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir og Bryndís Símonardóttir, fundarritarar.