Fara í efni

Orkusjóður úthlutar tæpum 200 m.kr. til Norðurlands eystra

Orkusjóður úthlutar tæpum 200 m.kr. til Norðurlands eystra

Þann 16. ágúst síðastliðinn voru styrkveitingar úr Orkusjóði 2024 kynntar. Í þetta skiptið voru veittar 1,342 milljónir króna til alls 53 verkefna. Þar af voru 13 verkefni sem koma til framkvæmda á Norðurlandi eystra fyrir samtals tæpar 200 milljónir króna, eða um 15% af heildarúthlutuninni. Dæmi um verkefni sem hlutu styrk á Norðurlandi eystra eru hraðhleðslugámar á Húsavík og í Reykjahlíð, hraðhleðslur í ferðaþjónustu fyrir stærri ökutæki við Mývatn, birtuorkuframleiðsla í Eyjafjarðarsveit, mengunarlausar fjórhjólaferðir, Green boat á Húsavík, aukin lífdíselframleiðsla hjá Orkey ehf og metanvinnsla á Dysnesi við Eyjafjörð.

Um er að ræða afar fjölbreytt verkefni sem snúa að öllum sviðum orkuskipta á sjó og landi. Á Norðurlandi eystra eru þetta einkum verkefni sem snúa að innlendri eldsneytisframleiðslu, innviðauppbyggingu og bættri nýtingu auðlinda.

Við hjá SSNE óskum styrkhöfum hjartanlega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með uppbyggingunni sem framundan er um land allt.

Allar upplýsingar um úthlutunina má nálgast á heimasíðu Orkustofnunar.

Getum við bætt síðuna?